Fyrstu tilnefningar til gullnu krókódlílandarinnar

Youtube notandin Potholer54Debunks hefur stofnað til verðlauna afhendingarinnar "Golden CrocoDuck" þar sem aðrir notendur geta tilnefnt sköpunarsinna fyrir einhver snilldar tilþrif (eins og að láta sér detta það í hug eitthvað eins og crocoduck) og svo þegar tilnefningar liggja fyrir er svo hægt að kjósa.

Í gær komu fyrstu tilnefningarnar:

  • Ray Comfort fyrir að viðurkenna að hann veit ekkert um banana á sama tíma og hann kvartar yfir því að engin taki mark á því sem hann segir (engir nema aðrir sköpunarsinnar þe.)
  • Don Patton fyrir bull og rangfærslur um stökkbreytingar og að tala við hundinn sinn og eiga talandi kött.
  • Youtube notandi Sincitypreacher fyrir rangar alhæfingar um þróuna sem sýnir að hann veit ekkert hvað hann er að tala um.
  • Earl Tilford fyrir venjulega and-þróunar áróðurinn að "survival of the fitest" þýði í raun "survival of the strongest".

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband