Færsluflokkur: Kvikmyndir

Bíó: biblían og heimsendablæti

Í gær fjallaði ég lauslega um myndina Book of Eli, sem fjallar um mann sem gætir síðasta eintak biblíunnar sem á að geta endurreist samfélag manna eftir að hamfarir hafa nánast lagt jörðina í eyði.  Að minnsta kosti er sögusvið myndarinnar, Bandaríkin, í svona 'post-apocalyptic state', veit ekki hvernig það kom til.

En þemað; heimsendir, biblían og trú.

Í gær sá ég líka trailer fyrir myndina Legion, þar sem söguþráðurinn snýst um að mannkyn hafi endanlega misst trúna á guði og hann hafi því ákveðið (enn einu sinni) að útrýma öllum.  Eina von mannkyns er auðvitað nýfætt barn sem gætt er af sundurleitum hóp manna og einum engli á veitingastað í miðri eyðimörk.

Aftur er þemað; heimsendir, biblían og trú.

Í ár á aldeilis að græða á kristnum sem bíða spenntir eftir heimsendi.


Þetta verður forvitnilegt

Hvernig gerir maður kvikmynd um líf manns sem má ekki mynda?
mbl.is Kvikmynd um Múhameð spámann í smíðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband