Skemmtileg tilviljun..
13.1.2010 | 11:31
Innan skamms verður frumsýnd myndin Book of Eli þar sem Denzel Washington fer með aðalhlutverkið. En myndin gerist 2043 þegar hamfarir eða stríð hafa lagt Bandaríkin í rúst, Washington leikur Eli sem ferðast um landið með síðasta eintakið af Biblíunni sem á að vera eina von mannkyns um að endurreisa samfélagið.
Hvað ætli Biblían hans Washington segi um markaðssetningu?
ImDB: The Book of Eli (2010)
Kvikmyndir.is: The Book of Eli (2010)
Wiki: The Book of Eli
Denzel Washington lifir samkvæmt Biblíunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 11:33 | Facebook
Athugasemdir
Karlanginn er sem sagt algerlega úti að aka... skemmdur af pabba sínum og biblíu :)
DoctorE (IP-tala skráð) 13.1.2010 kl. 11:42
Bandaríkjamenn eru nú upp til hópa trúaðir og ótrúlega oft með biblíuna við hendina. Alls ekki ólíklegt að Denzel Washington sé trúaður, fari reglulega í kirkju og biðji borðbæn fyrir mat.
En tímasetningin á þessari frétt hentar alveg ótrúlega vel fyrir trúarlegt þema myndarinnar sem verður frumsýnd á föstudaginn 15. í BNA.
Mér finnst mótsögn í því að segjast mjög trúaður á biblíuna og nota hana svo í markaðssetningu fyrir bíómynd. Passar einhvern vegin ekki alveg við boðskap Jesú um auðsöfnun. Sem styður það að þessi 'frétt' sé bara markaðstrick.
Arnar, 13.1.2010 kl. 13:05
Að sjálfsögðu er fullt af markaðstrikkum í Hollywood, en það þýðir ekki að Denzel Washington hafi sent frá sér opinbera yfirlýsingu um trú sýna. Líklega var hann á einhverju premiere, spurður af einhverjum slúðurdálkahöfundi hvort hann væri trúaður og hann sagði já... þetta er svo sent í blöðin. Það þýðir samt ekki að það sé endilega einhverskonar stórtækilegt markaðssamsæri í gangi.
Grétar (IP-tala skráð) 13.1.2010 kl. 13:31
Jú jú, auðvitað er mjög líklegt að þetta sé haft eftir honum í einhverju viðtali tengdu myndinni. Hef ekki haldið því fram að þetta væri einhver yfirlýsing frá honum persónulega.
Arnar, 13.1.2010 kl. 14:18
Ef nútímamaður færi bókstaflega eftir Gamla testamentinu þá væri hann glæpamaður en ef hann færi bókstaflega eftir Nýja testamentinu þá væri hann geðsjúkur.
gunnar (IP-tala skráð) 13.1.2010 kl. 19:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.