Drasl..
30.10.2009 | 15:34
Ég þarf að senda öðrum bloggara skilaboð.
Reyndar er viðkomandi bara 'bloggari' í þeim skilningi að hann er skráður á blog.is, en hefur ekki skrifað neinar færslur.
Ég get hinsvegar ekki sent honum skilaboð því að hann er ekki blog-vinur minn. Sendi blog-vina-beiðni en hef ekki hugmynd um hvenær og hvort viðkomandi sér það. Og ég þarf að senda skilaboðin núna (af því að ég er óþolimóður, er að fara að koma mér heim og á ekki eftir að kíkja inn á blog.is alla helgina).
Á eftir að pirra mig á þessu alla helgina. Afhverju geta ekki allir skráðir bloggarar send öllum öðrum skráðum bloggurum skilaboð (einum í einu samt) án þess að verða 'vinir' fyrst?
Drasl.
Athugasemdir
Ég er ekkert búinn að setja mig inn í þetta bloggvinakerfi, reyndi einhvern tíma að senda nokkrum vinabeiðni en hætti þar sem ég fann ekki strax hvernig það virkaði.
Sé heldur ekki þina vinabeiðni í stjórnborðinu þó ég hafi fengið tilkynningu um hana í emailinu :S
meilið hjá mér er sveinn_thorhallsson@simnet.is annars
Sveinn Þórhallsson, 2.11.2009 kl. 15:35
Allt í lagi mín vegna.. er ekkert rosalega sár, enda á ég enga vini. Svo dró ég beiðnina til baka þegar ég 'gaf upp vonina' stuttu seinna.
Ætlaði bara að benda þér á 'rannsóknina' sem Potholer54Debunks gerði á The Hovind Theory, þar sem kom í ljós að ef allskonar mismunandi jarðveg er hrært saman í vatni þá myndast bara eitt setlag en ekki mörg eins og Mofi (án ó) var að fiska eftir.
Athugasemdin um fótsporin í setlögunum gera reyndar út um hugmyndir Mofa um flóð og setlög.
Arnar, 2.11.2009 kl. 15:56
Já ég hefði haldið það ;)
Sveinn Þórhallsson, 2.11.2009 kl. 16:17
Enda er maðurinn ekkert að svara...
Sveinn Þórhallsson, 2.11.2009 kl. 16:17
Jú jú, seinna í öðru bloggi, hann er bara svo upptekin akkurat núna.
Sem þýðir yfirleitt að hann sé að reyna að gleyma þessu.
Arnar, 2.11.2009 kl. 16:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.