Þakkargjörðardagur í kirkjum?
28.10.2009 | 15:12
Skil ekki alveg hvaðan sérann fær þessa hugmynd, Þakkargjörðardagurinn hefur EKKERT með trúarbrögð að gera. Þeim væri náttúrulega frjálst að halda haustfagnað, uppskeruhátíð eða eitthvað sambærilegt en "Þakkargjörðardagurinn" er (amk. fyrir mér) frátekið heiti, að tengja hann einhvern vegin við íslenski kirkjuna jaðrar við þjófnað.
Vill taka upp þakkargjörðardag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Trúmál | Aukaflokkar: Fjölmiðlar, Trúmál og siðferði | Facebook
Athugasemdir
Presturinn er að reyna að fá fólk til að dansa eftir sinni pípu.. kristni er á hraðri niðurleið.. enda fáránleg saga og viðbjóðslegur þessi guð þeirra
DoctorE (IP-tala skráð) 28.10.2009 kl. 15:38
Þetta yrði þá ekki fyrsta hátíðin sem kirkjan yfirtekur.
Reputo, 28.10.2009 kl. 15:56
Þakkargjörðin er alveg ljómandi fín hátíð. Einn helsti kosturinn er að hún er í lok nóvember og einangrar fólk fyrir jólunum. Í BNA byrjar jólastússið EFTIR þakkargjörðina.
Arnar Pálsson, 29.10.2009 kl. 10:07
Það ættu nú að vera lög sem banna jólaskraut, jólalög og jólaauglýsingar fyrir miðjan nóvember. Segi ég sem er búinn að kaupa flestar jólagafir og jólaföt á börnin
En við íslendingar höfum nú þegar sambærilegt fyrirbæri; árshátíð, uppskeruhátíð og/eða haustfagnað, sem eru haldnir, algerlega sjálfstætt, af íþróttafélögum, fyrirtækjum og öðrum félagsskap. Það hefur bara ekki verið neinn einn fastur dagur fyrir svona lagað.
Arnar, 29.10.2009 kl. 10:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.