Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009
Meiri grafísk framsetning á upplýsingum um svínaflensubólusetningu
26.11.2009 | 12:20
Ætti ekki að hafa tíma til að vera að 'surfa' en gat ekki stillt mig um að kíkja aftur á síðuna skemmtilegu sem ég rakst á í gær, www.informationisbeautiful.net.
Á Is the H1N1 swineflue vaccine safe? má finna linka á allar upplýsingarnar sem 'hann' (David McCandless) studdist við til að setja þetta saman. Frábær framsetning.
Information IS beautiful..
Áhættan af svínaflensubólusetningu sett í samhengi
25.11.2009 | 14:47
Biskup Íslands biður (bænir) í skammdeginu
20.11.2009 | 11:39
Hélt að svona fólk væri ekki til lengur, hefði dáið út með risaeðlunum.. eða 'örfáum' árum seinna þegar mannkyn uppgötvaði að jörðin snérist í kringum sólu en ekki öfugt.
En, Biskup Íslands telur sig þurfa að biðja til guðsins síns til að skammdegið endi og sólin fari aftur að rísa á lofti. Sá eftirfarandi hjá Matta (Örvita) þar sem fjallað er um facebook færslu biskups:
Það er hreint ótrúlegt að það þurfi að benda einstaklingi í upplýstu samfélagi nútímans á það hvernig möndulhalli og gangur jarðar umhverfis sólu hefur áhrif á árstíðir og ekki síst hversu lengi eða stutt við njótum dagsbirtu á svona norðarlega á hnettinum.
Ekki nóg með það heldur virðist hann líka sannfærður um að sólin rísi ekki upp á morgnana heldur án viðeigandi tilbeiðslu. Samkvæmt annarri facebook færslu sem Sveinn Kjarval bendir á eftir fyrirspurn mína (í gríni) hjá Matta:
Ef biskup trúir virkilega að guðinn hans hafi bein áhrif á gang jarðarinnar umhverfis sólu og jafnvel því að guðinn gæti ákveðið að sleppa því að 'láta' sólina koma upp við sólarupprás á morgnanna ef honum misbyði eitthvað, þá er maðurinn fáviti.
Í þeim skilningi að hann viti fátt.
Ég held ekki að biskup sé fáviti, hann fær hinsvegar miljón á mánuði (samkvæmt orðrómi) fyrir að breiða út svona fávisku.
Ég væri alveg til í að fá miljón á mánuði fyrir að bulla eitthvað svo auðtrúa fólk geti sofið rólegt í þeirri vissu um að sólin rísi nú aftur á morgun. Miðað við að sólin hefur gert það í c.a. 4 miljarða ára og á eftir að gera það í þó nokkra miljarða ára í viðbót, er sú spá að sólin rísi aftur í fyrramálið áreiðanlegri en veðurspáin. Getur varla klikkað.
En fyrir aðra sem treysta á heilbrigða skynsemi, þá er útskýringin á vísindavefnum alveg ágæt.
En ég er en þá forvitin, og nú ekki í gríni; Hvernig bregst biskup við í sólmyrkva? Biður hann til guðs á facebook um að láta sólina birtast aftur?
Trúmál | Breytt 23.11.2009 kl. 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Hver hlustar á bænirnar þínar?
18.11.2009 | 14:05
Um ásættanleg trúarbrögð
18.11.2009 | 11:10
Í bloggfærslunni Um búddisma sem staðgengil kristni, hjá Kristni missti ég eftirfarandi út úr mér varðandi hvað mér þætti 'ásættanlega lítið bull'. Reyndar um buddisma en held þetta eigi við mína skoðun á trúarbrögðum almennt.
Trúarbrögð væru ásættanleg af minni hálfu ef:
- Þau reyndu ekki að koma trúarlegum skoðunum sínum inn í veraldleg lög.
- Þau reyndu ekki að koma trúarlegum skoðunum sínum inn í stjórnkerfi.
- Þau reyndu ekki að koma trúarlegum skoðunum sínum inn í menntakerfið.
- Þau stunduðu ekki trúboð á börnum, en yrði að sjálfsögðu leyft að fræða þá sem sækjast eftir því og jafnvel taka þátt í trúarbragðafræðslu í grunnskólum, þar sem öll trúarbrögð stæðu jafnfætis.
- Stæðu sjálf straum af kostnaði við starfsemi trúfélagsins (þe. ríkið kæmi ekki að rekstrinum í formi launagreiðslna eða annarra greiðslna) og sæju sjálf um innheimtu félagsgjalda.
Og svo má bæta við:
- Engin væri skráður óviljugur og óafvitandi í trúfélag. Ekki mætti skrá barn í trúfélag fyrr en það væri sjálfráða.
Held að þetta séu ekki ósanngjarnar kröfur. Án þessara liða get ég ekki séð að það ríki trúfrelsi.
Fólk má trúa hverju sem það vill fyrir mér, svo framarlega sem það er ekki að þvinga trú sinni upp á aðra.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Er ekki kominn tími til að sköpunarsinnar standi við stóru orðin
17.11.2009 | 15:18
Sjöundadags Aðventistar vilja banna kennslu á þróunarkenningunni
6.11.2009 | 16:46
Petition calls for teaching creationism in La Sierra biology classes.
A Riverside Seventh-day Adventist university is under fire for teaching evolution in its biology classes without telling students that the scientific explanation for the origins of life contradicts church beliefs.
Já, þið eruð örugglega jafn hissa og ég; sjöundadags aðventista háskóli sem kennir um þróun í líffræði tíma. Ótrúlegt.
Aðrir aðventistar (að minnsta kosti þeir sem eru bókstafstrúaðir sköpunarsinnar) voru líka mjög hissa, og berjast nú fyrir því að þessu verði hætt hið snarasta og vilja fá biblíulega sköpun inn í staðinn. Í líffræði.
Nú vænti ég þess að Mofi nýti krafta sína og sambönd meðal sjöundadags aðventista og krefjist þess að kennslan á þróun verði ekki felld niður heldur verði nemendum kynntar 'báðar' hliðar málsins.
Þetta er alveg ótrúlega skemmtileg uppákoma í ljósi þess að sköpunarsinnar létu framleiða mynd, Expelled!, um það hvernig sköpunarsinnar væru lagðir i einelti í háskólum bandaríkjanna.
Skynsemin ræður
4.11.2009 | 12:12
(Nei, þessi færsla hefur ekkert með Trabant að gera)
Árið 2001 birtist grein eftir þrjá lækna við Columbia háskólan í N.Y.C. í Jornal of Reproductive Medicine þar sem þeir greindu frá rannsókn sinni, sem væri ekki frásögu færandi nema hvað þeir héldu því fram að þeir hefðu sýnt fram á að bænir ykju frjósemi kvenna sem voru í frjósemis aðgerð um 50% um fram frjósemi þeirra sem nutu ekki bæna við.
Þeir sögðust sem sagt búnir að framkvæma rannsókn sem staðfesti það að bænir virkuðu.
Margir efuðust, þar á meðal Dr. Bruce Flamm, prófessor við háskólann í Californíu. Hann fór yfir rannsóknar gögnin og gerði margar athugasemdir við framkvæmdina sem voru birtar í öðrum læknaritum. Hann komst líka að því að einn af með höfundum greinarinnar var alls ekki læknir heldur lögfræðingur með masters gráðu í Parapsycology (þekki ekki hvað íslenska heitið er, einhverskonar sálarrannsóknir) og hafði áður birt margar vafasamar greinar um yfirnáttúrulegan lækningarmát. Sami einstaklingur var einnig seinna dæmdur fyrir svik og fjárplógstarfsemi (mail fraud) sem var ekki til þess að auka á áreiðanleika hans.
Eftir ítrekaðar fyrirspurnir Dr. Flamm lét Columbia háskólinn einnig fjarlægja nafn annars höfundar af greininni, prófessors við skólann, þar sem hann sagðist bara hafa gengt ráðgefandi hlutverki.
Eini eftirstandandi höfundurinn fór í framhaldinu í meiðyrða mál gagnvart Dr. Flamm, í stað þess að leggja fram einhver frekari gögn eða rök til að styðja greinina, sem hann svo tapaði nú nýlega.
Eftir þessa útreið getur maður ekki tekið mikið mark á svona grein; einn höfundurinn var vanhæfur og þar að auki búinn að mynda sér skoðun fyrirfram, annar lét afmá nafn sitt af greininni (spurning af hverju hann leyfði það að setja nafnið sitt á hana til að byrja með) og sá þriðji reyndi að þagga niður gagnrýni með málsókn í stað þess að verja rannsóknina með gögnum og rökum.
Niðurstaðan hlýtur óhjákvæmilega að vera sú að bænir virka bara als ekki.
Michael Shermer kemur með skemmtilegan vínkil á þetta:
One wonders why the prayers do not seem to work in the other direction; that is, all those women who, due to alcohol or other external influences, engaged in sexual activity with no intention of conceiving and thus, over the course of the next several days, prayed like mad for pregnancy prevention, to no avail.
Ítarefni:
- 24-7 press release: Court Vindicates Doctor Who Questioned Pregnancy "Miracle" Report, Throws Out Kwang Yul Cha's Lawsuit
- Skepticblog: A SKEPTICAL TRIUMPH OVER MEDICAL FLIM-FLAM
- Time Questioning Healing Prayer
- Time More Questions on Healing Prayer
Þetta verður forvitnilegt
2.11.2009 | 16:13
Kvikmynd um Múhameð spámann í smíðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fer ég með dópáróður?
2.11.2009 | 15:47
Ég var bannaður af öðrum bloggara, aftur.
Ekki það að mér líði neitt sérstaklega illa yfir því, mér finnast ástæðurnar og ásakanirnar bara fáránlegar.
Guðrún nokkur bloggar um dópáróður á blog.is og vill meina að það sé glæpsamlegt að fjalla um fíkniefni, aðallega kannabis. Helst virðist það fara í taugarnar á henni að þeir sem stunda slíkan 'dópáróður' vísi í Wiki máli sínu til stuðnings, ég gerði athugasemd við þá skoðun hennar að það væri bara eftirlitslaust rusl inni á Wiki.
20Arnar, 2.11.2009 kl. 13:50
Seinna benti ég henni á að það væri einfaldlega ekki glæpur að fjalla um kannabis.
27Guðrún,það er ekki glæpur að tala um kannabis. Það er ekki glæpur að segja að kannabis sé skaðminna en bæði áfengi og tóbak. Það er heldur ekki glæpur að benda á það að á meðan lögreglan er að eyða hellings tíma,peningum og orku í nánast vonlausri baráttu gegn kannabis þá er það hellings tími, peningar og orka sem fer EKKI í að berjast gegn mun hættulegri eiturlyfjum.
Svona eins og löggan væri að stoppa alla sem keyra of hægt (það er líka hættulegt), en einbeita sér ekki að þeim sem keyra of hratt.
Arnar, 2.11.2009 kl. 14:33
Ekkert svar.. en ég sá að í svari hennar til annars aðila þá heldur hún því fram að unglingar fari út í neyslu vegna þess að þeir lesi um að það sé sagt í lagi á 'þessum bloggum'.
28"Þeir sem umgangast unglinga sem hafa verið í neyslu þekkja vel hversu mikið þau vitna í þessi blogg"
Þessir unglingar í neyslu.. drekka þeir og reykja?
Í'þessum bloggum' er oftast minnst á það að kannabis sé hættuminna (svona heilsulega séð) en áfengi og tóbak. Ef þessir unglingar eru svona áhrifagjarnir og fara eftir öllu sem 'þessi blog' segja þeim að gera.. af hverju neyta þau áfengis og/eða reykja?
Arnar, 2.11.2009 kl. 14:35
Ætli ég geti túlkað það sem einhvers konar svar að athugasemdum mínum var öllum eytt og ég bannaður af blogginu hennar með orðunum:
20
Ég ætla mér að eyða út öllum dópáróðri í svörum fólks og loka á aðgang þeirra sem að eru með dópáróður.
Fíkniefnaneyslan er skelfilegt vandamál sem að verður að taka á.
Guðrún Sæmundsdóttir, 2.11.2009 kl. 14:38
Já einmitt, þannig tekur maður á vandamálum, þaggar niður alla gagnrýni og bannar þá sem eru ekki alveg sammála.
Var ég með "dópáróður", hafði spurning mín varðandi 'ruslið' á Wiki eitthvað með "dópáróður" að gera? Var mikil hætta á því að unglingar álpuðust inn á bloggið hennar, læsu færsluna eftir mig og hugsuðu: "Hey, þessi gaur segir að það sé ekki eintómt eftirlitslaust rusl inni á Wiki, förum og fáum okkur dóp".
Maður leysir ekki vandamál með þöggun eða ritskoðun. Maður leysir þau með opinskárri umræðu þar sem öll sjónarmið fá að koma fram. Guðrún er algerlega út á þekju og hefur engan áhuga á gagnrýni, sumir gætu jafnvel freistast til þess að segja að hún bulli.
Göngudeild SÁÁ lokað ef fjárframlög minnka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Hvaða heimildir hefur þú fyrir því að það sé ekkert eftirlit með því hvaða 'rusl' er sett inn á Wiki.
Og ef hver sem er getur sett hvað sem er inn á Wiki, getur þú þá ekki bara farið þangað inn og leiðrétt misskilningin fyrst þér er þetta svona hugleikið?